Það skrítna við jökla er að þeir eru á stöðugri hreyfingu.
Við jaðar jökulsins snjóar miklu minna heldur en ofan á jöklinum og snjórinn safnast saman uppi á jöklinum. Á 20-30 m dýpi byrjar snjórinn að breytast í ískristala. Ískristalarnir stækka og á 30-50 m dýpi er ísinn orðinn svo þjáll og þrýstingurinn mikill og þannig byrjar jökullinn að skríða áfram. Yfirborðið springur þegar jökulinn mjakast áfram. Jökullinn skríður áfram vegna halla, þunga jökulsins efst og þrýstingsins.